strullarasíðan

why does my heart feel so bad...

04.10.2008 20:44:58 / kristinhj

one casual blog

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina

Kaupfélagið í varmahlíð
Unglingavinnan
Sjúkrahúsið á Sauðárkrók
ferðaþjónustan á Hólum í Hjaltadal

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á

Mýrin
Trainspotting
Love actually
Mamma Mia

Fjórir staðir sem ég hef búið á

Freising, Þýskalandi
Helgavatn; Vatnsdal
Kópavogur
Akureyri

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar

Friends
House
Klovn
simpsons

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum

New York
Ísafjörður
Berlin
Borgarfjörður Eytri

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg

unak.is
mbl.is
facebook.com
yahoo.com

Fernt sem ég held uppá matarkyns

pönnukökur
hrísgrjónagrautur
ábrystir
kjöt í karrý

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft

Andrésblöð
Skólabækur (je right)
Mýrin
Da Vincy code


Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka

þeir sem vilja vera klukkaðir !!

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna

Reykjavík
Berlin
Sveitin
þar sem ég er núna

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 16:28:21 / kristinhj

kommbak með meiru !

Ættli það muni ekki flestir hvað þeir voru að gera fyrir ári síðan, þegar tvíburaturnarnir hrundu ? Ég var í saumatíma í húsó þegar einhver kom hlaupandi inn í saumastofuna og sagði okkur fréttirnar, reyndar vissi ég lítið um þessa turna þá og var eiginlega ekkert mikið að fylgjast með heimsmálunum, enda á þeim aldri þar sem það er e-a annað sem fyllir huga manns. Þó ég hafi lítið vitað (eða haft lítin áhuga) þá var ég full áhugar þegar ég var í New York síðasta sumar að fara að Ground zero og það snerti óneitanlega við manni að vera á stað þar sem hundruðir manna dóu.

Hví er svona erfitt að hækka laun ljósmæðra ?
það er auðvitað bara út í hött að þær skuli hafa hærri laun að vinna sem hjúkrunarfæðingar (4 ár í háskóla)  heldur en sem ljósmæður (6 ár í háskóla). Einhverstaðar las ég að það var einhver "launa kall" að segja að ef árferðið væri annað væri hægt að gangast við þessum kröfum þeirra, sem er 25 % launahækkun, en svo svaraði þessu einhver ljósmóðir sem sagði að þær hefðu lagt fram sömu kröfur fyrir nokkrum árum síðan þegar það var ekki þessi umtalaða kreppa. 
Er ekki hægt að gangast við þessu vegna þess að þetta er "kvennastétt" eða býr annað og meira undir ? Það mætti ættla í framhaldi af þessu að ríkið hafi líka séð eftir krónunum sem hjúkrunarfræðingar náðu að semja um í sumar....eða hvað ? Að mínu mati mætti lækka laun t.d. hjá seðlabankastjóranum og einhverju af þessu ráðherrafólki og að ráðherrarnir og makar þeirra (þó kanski meira makarnir) ætti að borga sínar utanlandsferðir sjálfir, samanber 5 millj.kr. ferð Þorgerðar Katrínar og mannsins hennar á ólympíuleikana í sumar. 
Svo ber ekkert á þessu seinna verkfalli ljósmæðra í fjölmiðlum, nema það fari algerlega fram hjá mér, en ég styð þær heilshugar í þessari baráttu og finn til með öllum konum sem eru óléttar og allveg að fara að eiga sín börn. fúff !

 

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2008 12:02:39 / kristinhj

busy ?

er ekki allveg búin að ákveða mig hvort bloggið sé í sumarfríi eða bara í algeru fríi.....sjáum til 8)

kem kanski með djúsí sögur eftir sumarið. ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 08:44:30 / kristinhj

sólstingur

ef það er ekki góður tími til að blogga núna þá veit ég ekki hvað. er stödd í æðislegum tíma í tölfræði hjá yndislega kennaranum honum Andy Brooks. :cry: betra að nota þennan tíma en ekki dýrmætanlærdómsprófatímaásafninu. hann talar og talar og talar og ekkert festist eða skilst....humm
sól og blíða úti og vorið að koma, það gerist ekki betra. einungis mánuður eftir og ekki einu sinni það...bwahhhh

verknám búið, fékk að njóta þess heiðurs að fara á Sigló og prufa að búa þar í tvær vikur. mjög næs reyndar, solldið rólegt fyrir minn smekk. skrapp yfir síðustu helgi til rvk, rétt til að kikka á fólkið og versla pinku pons. 8)
eftir nærri 3 vikur í burtu var mjög gott að koma heim og fara að sofa í sínu eigin rúmi og hafa fataskápin fyrir framan sig en ekki bara einhverja tösku og þurfa alltaf að vera í næstum sömu fötunum....vil hafa möguleika ;)

næst á dagskrá eftir próf sem eru nóta bene búin 9. maí (haha gott ég fór ekki til rvk í skóla) er vika í sveitinni og svo byrja að vinná í nýju vinunni minni, útileigur og njóta sumarsins í botn....plan sem getur ekki klikkað. 

en tímin að verða búin (sem betur fer)
bli bli bli

» 5 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 17:48:48 / kristinhj

heija ísafjörður

farið að síga á seinnuhlutan á páskahelginni, þetta voru tvímælalaust bestu páskar í langan tíma, mjög góð tilbreyting að vera ekki á króknum í sama þreytta fílingnum aftur og aftur, enda ef það hefði gerst þá væri ég með ælupesti núna eins og öll fjölskyldan 8|

vorum mjög heppin með veður á leiðinni á föstudaginn langa, sól og blíða en annað má segja með vegina (fórum reyndar aðeins lengri leið, mannleg mistök sem áttu sér stað) frænka hennar Dagnýar sá um að halda maganum fullum af mat og glösunum fullum af rauðvíni 8)
á föstudagskvöldið fórum við í partý sem monitor hélt og græddum auka-öl, vorum reyndar bara í hálfu teitinu.....
vöknuðum í sól og blíðu fórum og skoðuðum skíðasvæðið og ísafjörð (ríkið og besta bakaríið á landinu) já og ég auðvitað átti afmæli þennan dag, gaman að koma heim árinu eldri en maður lagði af stað :d um kvöldið var stíft tónleika-plan svo tók við tjútt í edinborgarhúsinu og súrt partý með fólki sem við þekkjum ekki baun, fólk átti erfitt með að halda sig í fötunum......kvöddum svo með því að rita háfleig orð í gestabókina sem var eldhúsgólfið (hahahaha) 

Andrew fékk heiðurinn af því að keyra þreyttum stúlkum heim, í dúndur blíðu og sumarfærð. svo vitaskuld þýðir ekki að koma heim með áfengi sem var klárað á leiðinni.  :d
     
Föstudagur
Bob Justman
Hjaltalín --> kemur að sjálfu sér, DÚNDUR
Ben Frost --> á mörkum þess að vera af þessum heimi, frekar súrt
Vax --> ásættanlegt
Steintryggur --> góðir, með bógomil font á trommunum og ben frost á tölvunni, DÚNDUR
Morðingjarnir --> góðir en voru reknir niður af sviðinu vegna slæmrar hegðunnar
Biogen --> góður DJ en heldur ekki takti við sína eigin tónlist , DÚNDUR
Skakkamanage --> spes en þó ekki alslæm
Hjálmar --> hugsa að það segi sér sjálft, með megas á gítar, DÚNDUR
Megas --> getur ekki klikkað, snillingurinn hafi hjálma með sér, DÚNDUR
Mugison --> tónleika haldarinn sjálfur, hefði mátt spila mun lengur DÚNDRaNDi DÚNDUR

Laugardagur
Abbababb
Retro Stefson
Vilhelm
Hellvar --> þau eru góð, Heiða í Unun í fararbroddi 
Johnny Sexual --> tjahh solldið súrt með ástina á heilanum
Hálfkák
Lára Rúnars
Prinsinn og Rattó
Benny Crespos --> upprennandi snillingar, DÚNDUR
diagon --> ekki alslæmt, komu á óvart
Sudden weather change --> heitur söngvari, allt um málið á youtube
Sprengjuhöllin --> frumfluttu nýtt lag, DÚNDUR
Eivör --> ofur rödd, segir sig sjálft, DÚNDUR
Karlakórinn og Óttarr --> brill, frumfluttu lag eftir mugison, settu upp gula hanska og tóku hinn eina sanna slagara, DÚNDUR
Mysterious Marta --> rauðhetta með appelsínu gula hettu, með flesta úr hraun á hljóðfærum
Skátar --> í einstaklega þröngum gullbuxum misjafnlega vel vaxnir
Múgsefjun --> skagfirðingur á harmonikku nettir DÚNDUR
Dísa --> einstaklega góð, enda væri annað skrítið miðað við foreldrana,DÚNDUR
Hraun --> ástarsaga úr fjöllunum og fleiri snilldarlög,enduðu fáklæddir upp á sviði með UMTS, DÚNDUR
UMTS --> unglömb hátíðarinnar, góðir en spes
XXX Rottweilerhundar --> tjahh ekki allveg minn smekkur en þó héldu vel í stemmaran
Sign --> hotti á trommunum sá ekki mikið annað....DÚNDUR
SSSól--> ísfirðingurinn helgi björs, sveitaballastemmari í miðgarði DÚNDUR

bendi á myndir á fésbókinni. takk kærlega fyrir góða helgi homies 8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 20:57:18 / kristinhj

Árshátíð FSHA

árshátið HA var um siðustu helgi, alger dúndur snilld og skemmtileg-heit....ákvað að stela myndum héðan og þaðan í staðin fyrir að skrifa e-a rugl....enjoy :d

nettar.....


partur af 1. ári í hjúkrun


blómarósir....


smá bið efitr eftirréttinum


ótrúlega smartar



» 2 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 11:31:20 / kristinhj

bara komin mars ?

þetta fer bara að verða regluleg skrif hjá mér..það er að segja eitt á mánuði (haha) er að reyna að fjölga skrifunum, í alvörunni,
Stærsti höfuðverkurinn þessa stundina er hvað skal gera í sumar, væri svo nett til í að beila á allri vinnu og fara í road trip um ísland og evrópu og flækjast á milli tónlistarhátíða hér og þar 8) ohh hvað dagdraumar eru æðislegir.  það er svo margt sem kemur til greina að gera, en það er bara svo endalaust leiðinlegt að sækja um vinnur að það er ekki eðlilegt, endalaust sama rullan um fyrri störf og blablabla :$ hugsa jákvætt, hugsa jákvætt, hugsa ákvætt......

Berlín var algert æði, kemur svo sem ekki á óvart, en örlítið öðruvísi að vera þar að vetri til.  það var allavega líft inn í verslununum, þar sem er venjulega alltof heitt á sumrin eða svo mikil loftræsting að  það er við frostmark.  koktleilarnir klikkuðu ekki heldur 5 evrur, maturinn góður og félagsskapurinn æðislegur 8) skulum ekkert fara að ræða um Selfoss eða neitt þannig.....

í skólanum er allt það sama að gerast, sem er bara vibbalega mikið nóg af öllu félagslífi og lærdómur þar saman við í bland (eða kanski öfugt ?) árshátíðin var um síðustu helgi og já get ekki annað sagt en hún hafi komið á óvart bara, hljómsveitin þó kanski mest vil ég halda fram. þó svo ingó ædol sé of mikið "reyttur" fyrir minn smekk.......:$

er mjög ánægð með ákvörðum um páskafríið sem að þessu sinni verður eytt á Ísó ætla að slást í hjóp með fríðu föruneyti og fara á rokkhátíð alþýðunnar (ætla að athuga hvernig þetta fer fram þar sem þeir höfðu af Kk. Heimi eyrarósina) en fyrir algera slysni fengum við gistingu, öruglega þá síðustu sem var í boði þar sem það var hlegið að okkur á hinum stöðunum sem við hringdum á  (var allt uppbókað í janúar semsagt) en það verður lagt í'ann snemma á skírdag og komið heim aftur seint á páskadagskvöld. sé reyndar fram á að koma fátækari til baka en með mettuð af tónlist og skemmtanahaldi, og ég m un eyða afmælinu mínu þar líka.....jibbí 8) þetta getur ekki klikkað.   

best að halda áfram að troða þekkingu í heilan minn....


  

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 17:55:48 / kristinhj

About f**** time

vó greinilega komin einhver tími síðan ég fór síðast hingað inn til að rita e-a misjafnlega gáfulegt, það er búið að breyta öllu....

það er margt sem hefur gerst síðan á þrettándanum, það mikið að ég man ekki einu sinni allt :o  en svo ég byrji nú einhverstaðar þá kláruðum við einn áfanga í skólanum og hann endaði þannig að nokkra daga á eftir töluðum við nokkrar tungum og fósturfræðin áreitti okkur meira að segja líka í svefni, það rjátlaði svo af okkur á endanum með stífri drykkju í þriggja daga vísindaferð til RVK, held að það segi allt sem segja þarf.  heilbrigðisdeildin fór að skoða slysó, janus og e-a annað fyrirtæki (ekki allveg klár enntist víst ekki allveg í því að fara á alla staðina) og svo fóru allar deildirnar á laugardeginum í vífilfell sem auðvitað þarf ekkert að hafa fleiri orð um 8)

það tók allveg heila viku að ná sér eftir þetta skrall, svo um síðustu helgi var aftur haldið á vit ævintýranna og "flöskunnar". þorrablótavertíðin var hafin. á föstudaginn var fór ég með kjellunum af dvaló (starfsfólkinu) á blót hjá kiwanis og sínawik það var allveg heljarinnar hafarí og gleðin allveg í hávegum höfð.  daginn eftir var svo haldið upp á hóla þar sem farið var á blót í hofsós city og þar klikkar gleðin og hamingjan aldrei, taumlaus gleði, hlátrasköll og dansað allveg á við góðan tíma í bootinu :d enda þess allveg þörf þar sem hákarl, brennivín, svið og þessháttar kræsingar voru innbyrðar í miklu magni.
 
endaði svo á því að vera veðurtept á króknum enda kanski eins gott enda bíllin minn hálf bilaður, þó hann hafi farið á verkstæði á föstudeginum...:frown: voffin minn endaði svo aftur inn á verkstæði KS-manna á mánudagsmorgninum og slapp þaðan út eftir hádegið og ég rétt komst á ak. aftur þegar ég þurfti að hringja á verstæði hérna og láta laga mistök sem þeir höfðu gert á króknum !! ekki ánægð með það en ég slapp hinsvegar við að borga reikningin því þessar "elskur" viðurkenndu mistök sín fúslega og báðust innilegrar afsökunnar.

í dag (þegar þetta er ritað) er svo blessaður velentínusardagurinn........er ekki vön því að fá e-a gefins í tilefni að deginum en það var undantekning á því í dag, það er nú aldeilis saga að segja frá því:  ég var í tíma og iðjurnar líka og því var vel mætt enda verið að kynna fyrir okkur ritgerð sem við eigum að skila bráðlega, allavega þá kemur kona frá skrifstofunni í skólanum og spyr hvar Kristín Helga sé, sá hverju hún hélt á og þorði ekki að segja neitt, það var bennt á mig og hún rétti mér eina rauða rós og við á henni hjékk kort sem á stóð "valentínusardagurinn '08 Kristín Helga. frá leynilegum aðdáenda" ég hélt að ég ætlaði að deyja á staðnum !
en það besta við þetta er (besta og ekki besta) er að ég hef ekki hugmynd um frá hverjum þetta er, get ekki neitað því að ég hef einn grunaðan en vona bara að þessu verði svo fylgt eftir seinna...8)
 
það næsta á minni dagskrá er svo Berlín þann 22. feb og óneytanlega er mér farið að hlakka mikið mikið til.

kveð í kútin í bili
biz später

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 13:33:53 / kristinhj

þó fyrr hefði nú verið...

gleðileg jól og gott nýtt ár ;) ekki seinna vænna að skrifa þetta þar sem þrettándin er nú í dag. þessi jól og áramót komi og fóru eins og hendi væri veifað, held ég hafa bara misst af þeim þetta árið :$

það sem á daga mína hefur drifið síðasta mánuðin er nú ýmislegt, helst má þá nefna:

  • maraþon próftíð með tilheyrandi stressi og svefnleysi en það gékk allt vel og "náðist allt" auðvitað 8)
  • dúndur próflokadjamm, sjaldan skemmt mér betur á einu kvöldi. alger snilld sem einkenndist af fríum veigum og bjórþambkeppni (ég var áhorfandi reyndar)
  • byrjaði að vinna og fékk að spreita mig á ýmsu sem ég þarf að takast á sem hjúkka í framtíðinni.
  • djamm með tilheyrandi skandölum og rugli
  • matur og kökur sem voru innbyrt í ómældu magni (úff)
  • mikil fjölgun í ætinni 3 ný börn í des.

svo er það sem er frammundan á næstu mánuðum tveim.

  • skólin sem byrjaði ómannúðlega snemma 3.jan kl 13:30 með fórturfræðinni yndislegu :$
  • eitt próf núna 9. jan (rúlla því upp, á reyndar að vera að læra núna)
  • vísó 18. jan sem er upphitum fyrir....
  • ....vísó 31 jan- 3.feb risa vísindaferð til rvk jibbí 8)
  • vonandi fæ ég útborgað bráðum fyrir jólavinnuna og svo auðvitað borgun frá lín.
  • annað próf 31. jan fósturfræðin BÚIN, allt hitt eftir reyndar
  • helgar skemmtiferð til berlínar með Eik í lok febrúar.
  • þorrablót um miðjan feb. með Eik
  • nýtt boot námskeið sem byrjar 14. jan get ekki beðið er að stirðna
  • svo bara það sem á daga mína drífur :D

ég setti mér mjög gott áramótaheit, sem ég mun vinna að ómeðvitað eins lengi og þarf......


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 13:21:22 / kristinhj

no komment

mun ekki segja/skrifa orð fyrr en um miðjan des.....en ég á samt flugmiða til Berlínar 22. feb 2008 8)

og gangi mér og ykkur vel í prófum 8| 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.11.2007 22:39:54 / kristinhj

HOHOHO

Snilldar helgi liðinn, snilld snilld snilld snilld. Snilldar djamm, snilldar partý, snilldar draumar, snilldar hözl, snilldar keila, snilldar bögg snilld snilld snilld.

.......er farin að lenda í því upp á síðkastið að lenda í einhverskonar böggi, það er bara algerlega óþolandi þegar hitt kynið skilur ekki neitun og heldur áfram að vera uppáþrengjandi ,  ég kanski get ekki líka alltaf haldið mér saman og segi stundum e-a óhugsað en í þessu tilviki var það bara í góðu lagi en gaurin sætti sig ekki allveg við það sem ég sagði og þá byrjaði böggið.....fullt af fólki sem stóð með mér. dró mig útúr þessu rugli og lét hina um böggið, hlustaði bara gaumgæfilega hvað væri í gangi. Snilld.

.......gerði góða hluti í keilu, fékk meira að segja fellu.  Úti-keila er mun skemmtilegri en venjuleg, það sem til þarf er glerflöskur (tómar), hált undirlendi og snjóbolta.  Gékk kanski ekki allveg skem skildi vegna ölvunnar og linra snjóbolta.  Ég renndi mér bara á flöskurnar og náði fellu.  Snilld

.....eignaðist vinkonu sem sagðist hafa verið að koma útúr skápnum, komum öruglega sögu af stað.  Eftir það var hún titluð „lessan“ allt kvöldið og það var af hennar eigin ósk. Snilld

.....komst að því að vinkonu mína dreymdi vægast sagt krásalegan draum um okkur saman, en ég er rosa líbó og finnst það bara humm....snilld

......kvöldið/nóttin/morgunin endaði svo nokk almennilega bara sem er aðvitað.  Snilld

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 18:54:17 / kristinhj

here in my room

tímin er komin......

búin að koma mér vel fyrir í gamla stólnum hans afa og þá er best að blogga, ekki það ég held að hann (andinn)  hafi fylgt með stólnum (hann er dáin sko), það er alls ekki slæmt en hann er einhvernveigin búin að vera mér ofarlega í huga síðustu daga/vikur.......hvernig ætli það hafi verið að alast upp með báða foreldrana.....?

allavega mér líður skringó....er kalt samt er ég með heitar kinnar og ég er einhvernveigin ekki upplögð í að gera neitt, er búin annars að vera á fullu síðan í september :$ hef ekki einu sinni nennt að vera á bókasafninu í dag...og þá er nú e-a að held ég, langar mest að skríða upp í rúm og vera þar um óákveðin tíma.

það styttist hræðilega í jólin, og þau fara framhjá mér eins og vindurinn, verð ekki stressuð nema þá að það styttist í próf sem ég er samt ótrúlega róleg með, er komin með vinnu um jólin til að sponsera fylleríin mín og mat í janúar, en hinsvegar fæ ég hroll þegar ég þarf að ákveða mig hvar staðsetningin verður að kveldi 24.des :$ er svo mikil ekki jólamanneskja, hvernig væri bara að leggjast í dvala og skríða inn í holu svona 22 des og koma aftur út fyrir áramót, svona á gamlársdag eða e-a um það leytið....? fengi þá allavega góðan svefn og ekki koma kílóin á mann í svefni. mjög góð hugmynd.

get hrinlega ekki skrifað meira, lokaðist allt í einu.....

held ég sé að verða veik.....:$

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 23:56:00 / kristinhj

geðklofi....hollur ?

 

mig langar að daðra !

það er komin vetur og ég fýla hann ekki, svartur og kaldur, of margar brekkur fyrir mig (aðallega bílin samt) á akureyri en það batnar á morgun þar sem ég geri ráð fyrir að ný nagladekk virki betur en sumardekkin 8| kostar kanski of mikið en það kostar allt eitthvað.

er forfallin kúri sjúklingur.....ætti að senda mig í meðferð, er með fráhvarfseinkenni á háu stigi !

nýi mugison diskurinn er æði, gott tilboð 1800 kall og sendur heim að dyrum, vonandi allavega er ekki enn búin að fá hann reyndar. solldið þungur en það er í stíl við veturinn sem kom í dag.

er að fara til berlínar í lok febrúar tad verður æði, sitja á kaffihúsum og tjútta og borða góðan mat og ekkert að hugsa, bara líða áfram og vera kærulaus, ætti að gera þetta oftar. þá kanski fæ ég tækifæri til að daðra 8|

uppáhalds lagið mitt þessa daga er "love hurts" með incubus, flottur texti og þungt eins og annað þessa dagana.  það mætti ætla að ég væri e-a bitur, neita að viðurkenna það er bara undir sterkum áhrifum.  ´

skrítið blogg, enda skrítin dagur í dag

langar enn að daðra !

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 22:03:00 / kristinhj

endorfín er æði

ég er með almennan fiðring í mallakút, hlakka samt mest til að fara að skoða flugför til Berlínar með Eik um helgina, ekki það að ferðin verður að öllum líkindum snemma á næsta ári ;) það verður dúndur.  alltaf gaman að geta hlakkað til einhvers og það er af nægu að taka þessa dagana, svo verður líka dúndur að sitja með Öldu spila trivial og drekka hvítvín (serm er hollara en bjór) ;) alger dúndrandi snilld. já ég er semsagt að fara vestur um helgina......er ekki líka betra að ná í vetrardekkin svo gullvagnin landi nú ekki ílla í því þegar kemur hálka ?

 annars er ég í vímu, endorfín er æði 8) var að byrja í öðru sex vikna átaki í boot camp, og það er æði (aldrei of oft sagt) það er æði.  er orðin fíkill, get ekki hætt. núna verður árangurin meiri og sýnilegri, er ekki enn búin að sætta mig við tölur síðasta námskeiðis (ég veit, ekki að einblína á tölur) en það verður allur pakkin tekin núna, ekki nóg greinilega að mæta bara í tímana.....maturinn verður tekin í gegn líka (slepp samt blessunarlega við gosið og nammið;) ég skal, ég skal, hingað til hef ég komist langt á þrjóskunni og það breytist ekki núna. en endorfín er æði 8) ef ég skildi ekki hafa komið því að.

skólin er líka æði, mér finnst þetta rosalega skemmtilegt nám, sem þýðir að ég er á réttri hillu. meira að segja það sem tengist efnafræði á einn eða annan hátt er líka skemtilegt, anatomy er miklu skemtilegri en hjá Ásbirni í fnv ( að honum ólöskuðum auðvitað;) held að það sé líka endorfínið sem hafi þessi áhrif, það er æði.

hlakka til þegar hárið mitt verður orðið sítt, þá get ég farið að hnýta það saman og haft það enn meira upp í loftið, sama hvað amma segir mér finnst þetta töff og hana nú :!: konustráið lifir í gamla tímanum þegar allir urðu að vera eins annars var maður e-a skrítin. en ég segi það aldrei of oft að það verður að storka samfélaginu og sjálfum sér öðru hvoru annars er lífið ekkert skemtilegt. 

   


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 21:32:29 / kristinhj

athyglisvert.....

Espresso!

Þú ert með eindæmum sjálfsöruggur einstaklingur. Þú ert vandvirkur og samviskusamur en lætur það þó stundum eftir þér að fresta verkefnum til morguns. Þú ert á sífelldri hraðferð án þess þó að það hái þér á nokkurn hátt.

Þú ert 30 ml af mikið brenndu eðalkaffi.

Hér fylgir vottorð sem staðfestir að þú hefur tekið og staðist kaffiprófið. Til að sýna vottorðið á vefsíðunni þinni getur þú afritað HTML kóðann úr boxinu fyrir neðan.

Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Espresso!
30 ml af mikið brenndu eðalkaffi.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?
og by the way setti inn nýjar/gamlar myndir. solldið skrítnar en þó komust á netið

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 54871
Leitarbox